Skráðu þig á póstlista og þú færð 15% af fyrstu kaupum!
Galleri skart

Um okkur

Sagan okkar

Lyginni líkast

Sagan af því hvernig Gallerí skart varð til hjá okkur hjónum, Vilborgu og Brynleifi er lyginni líkust. En það er oft með lygilegustu sögur að þær eru alveg örugglega dagsannar, því hver gæti kokkað upp þvílíka frásögn?

 

Skartgripir

„Þetta byrjaði allt á því að kunningi minn sagði mér í óspurðum fréttum að ég ætti eftir að vinna við það að búa til og selja skart. Hann sagði líka að ef ég vildi að starfsframinn yrði farsæll mætti ég alls ekki velja verðið sjálfur, heldur þyrfti ég að bíða eftir tákni sem segði mér hversu dýrt ég ætti að selja hvern hlut.

Mér fannst þetta drepfyndið enda kunni ég varla að festa á mig hálsmen hvað þá að búa þau til. Stuttu síðar vann konan mín handverksborvél í leik og þá kviknaði löngun hjá mér að prófa skartgripagerð. Þá fer mig að dreyma skartgripi og handverksmuni.

Galleri skart

Upplifun í Skotlandi

Við konan förum í stutt frí til Skotlands og ég þræði götur Glasgow í leit að frekari innblæstri, en finn ekkert sem mig langar að kaupa svo ég fer tómhentur heim. Rúmri viku síðar bankar upp á hjá mér kona með fullan kassa af grjóti, ýmisskonar efni til skartgripagerðar og umbúðum til að selja þetta allt í. Hún segir að sig hafi dreymt að hún ætti að gefa mér þetta allt. Það var þá sem boltinn fór að rúlla og Gallerí skart varð til þann 5. des 2014,“ segir Brynleifur.

(Viðtal tók Marta Eiríksdóttir)

img_7718.jpeg
img_7693.jpeg
img_6748-1.jpeg
öðruvísi

Þar kennir ýmissa grasa

Það er gaman að koma til þeirra Brynleifs og Vilborgar. Þar kennir ýmissa grasa og þau bjóða upp á öðruvísi vörur. Fyrst og fremst eru í boði vörur sem eru frumlegar, fallegar og aðeins öðruvísi. Þau framleiða vörurnar að hluta til sjálf og leggja áherslu á sjálfbærni og endurvinnanlegar skargripa umbúðir.

is_IS